Skilmálar Gusa
Uppfært 13. ágúst 2026
Gusi (gusi.is) er markaðstorg og bókunarkerfi fyrir saunagus á Íslandi, rekið af Landic ehf., kt. 440924-0260, Reynihvammi 2, 200 Kópavogi. Með því að skrá félag og nota kerfið samþykkir þú þessa skilmála fyrir hönd rekstraraðilans.
1. Þjónustan
Gusi veitir gusustöðum bókunarkerfi, heimasíðu, greiðslumóttöku, uppgjör og skráningu í yfirlit allra gusustaða — án mánaðargjalda og án stofnkostnaðar.
2. Verð
Þjónustan er gjaldfrjáls: engin mánaðargjöld, enginn stofnkostnaður og ekkert gjald á bókun. Gusi áskilur sér rétt til að taka upp notkunargjald síðar með 30 daga fyrirvara skv. gr. 9. Slíkt gjald yrði reiknað af greiddum gestum umfram frítt mánaðarþak félagsins (sést í stjórnborði) og dregið frá uppgjöri — aldrei af endurgreiddum bókunum.
3. Uppgjör
Uppgjör fer fram mánaðarlega. Sundurliðað yfirlit birtist í stjórnborðinu og útborgun berst á skráðan bankareikning félagsins. Sölureikningar Gusa vegna gjalda jafnast á móti uppgjörinu.
4. Gusupassinn
Gusi áskilur sér rétt til að kynna sameiginlegan passa sem gildir hjá þátttökustöðum. Á meðan staður notar bókunarkerfið tekur hann á móti Gusupassa-höfum og fær greitt fyrir hverja innleysta klippu — hlutdeild staðarins er að lágmarki 85% af klippuvirði (stofnfélagar 90%). Félag getur sagt sig frá þátttöku; um það gildir 14.900 kr. m/vsk. mánaðargjald á meðan úrsögn varir.
5. Eigin passar og verðlagning
Hver staður ræður eigin verðlagningu að fullu og má selja eigin klippukort og passa sem gilda á hans stöðum, samhliða Gusupassanum.
6. Skráasafnið
Gusi heldur úti yfirliti yfir gusustaði landsins. Óstaðfestar skráningar byggja á opinberum upplýsingum og vísa á bókunarleiðir staðarins sjálfs. Rekstraraðili getur gert tilkall til skráningar síns staðar eða óskað eftir að hún verði fjarlægð — hafðu samband á gusi@gusi.is.
7. Framkvæmd og ábyrgð
Staðurinn ber ábyrgð á framkvæmd tíma, öryggi gesta og aðstöðu. Gusi er milligönguaðili um bókanir og greiðslur. Afbókunarstefna staðarins (sveigjanleg, hefðbundin eða ströng) birtist gestum við bókun og gildir um endurgreiðslur.
8. Gögn og persónuvernd
Gögn eru vistuð innan EES. Gusi vinnur persónuupplýsingar gesta aðeins vegna bókana og í samræmi við persónuverndarlög; staðurinn fær aðgang að upplýsingum um eigin gesti og fer með þær sem ábyrgðaraðili eigin vinnslu.
9. Breytingar á skilmálum
Gusi getur breytt skilmálum og verðskrá með 30 daga fyrirvara. Tilkynning berst á skráð netfang félagsins. Áframhaldandi notkun eftir gildistöku telst samþykki.
10. Uppsögn
Hvor aðili um sig getur lokað aðgangi hvenær sem er án fyrirvara. Áfallin gjöld og gerðar bókanir standa; uppgjör þegar staðfestra bókana fer fram með hefðbundnum hætti.
11. Ábyrgðartakmörkun
Gusi ber ekki ábyrgð á óbeinu tjóni eða rekstrartapi. Heildarábyrgð Gusa takmarkast við samanlögð notkunargjöld félagsins síðustu 12 mánuði.
12. Lög og varnarþing
Um skilmálana gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur skal hann rekinn fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.